Orkutölur

Gagnasöfnun Orkustofnunar

Orkustofnun safnar mánaðarlega tölum um vinnslu, eigin notkun stöðva og sölu raforku frá raforkufyrirtækjum á Íslandi. Einnig eru teknar saman upplýsingar um til hvers raforkan er notuð hjá hinum endanlega notanda eða skiptingu raforkunnar í svokallaða notkunarflokka. 

Þá eru geymdar tölur um afl virkjana og hvernig það hefur verið að breytast í tímanna rás auk upplýsinga um fallhæð vatnsaflsvirkjana. Tölur um ofangreinda þætti ná mislangt aftur í tíma og hefur orðið að áætla hinar elstu í sumum tilfellum.

Gögn um þróun heildarraforkuvinnslu á Íslandi frá 1915 er að finna hér.