Áherslur og reglur um úthlutun um styrki til jarðhitaleitar 2010
Megintilgangur átaksins er að stuðla að enn frekari nýtingu jarðvarma til húshitunar í landinu með það að markmiði, að bæta búsetuskilyrði og auka aðgengi að þeim gæðum og möguleikum sem nýting jarðhita hefur í för með sér, að draga úr notkun jarðefnaeldsneytis til húshitunar en jafnframt að draga út kostnaði ríkissjóðs vegna niðurgreiðslu húshitunarkostnaðar.
Áherslur:
- Áhersla verði lögð á jarðhitaleit í byggðakjörnum sem njóta niðurgreiðslna á rafhitun og eða kynda með olíu.
- Áhersla verði lögð á jarðhitaleit þar sem vænta má mikilla útgjalda vegna viðhalds eða úrbóta á núverandi orkukerfi.
- Áhersla verði lögð á að rannsóknum á hverju svæði verði lokið sem mest í einni lotu þar sem sýnt þykir að hitaveita er hagkvæmur kostur. Í því skyni verði gerðar jarðhitaleitaráætlanir til allt að 3ja ára í senn.
Reglur um úthlutun
Styrkir verða veittir til almennrar jarðhitaleitar með hitastigulsborunum og jarðvísindalegum aðferðum gegn mótframlagi umsækjanda
- Styrkur er ætlaður til jarðhitaleitar á köldum svæðum, þ.e. svæðum þar sem jarðhiti er ekki þekktur á yfirborði eða hitastig í volgrum er lágt. Boranir skulu vera vel undirbúnar. Vandað skal til áætlanagerðar og verkið skipulagt og unnið í samræmi við ráðleggingar jarðvísindamanna. Sé sótt um styrk til borunar hitastigulshola er miðað við 50-100 m djúpar holur.
- Styrkir eru veittir til sveitarfélaga, orkufyrirtækja, annarra fyrirtækja og einstaklinga.
- Umsækjandi þarf að sýna fram á að hitaveita sé hagkvæmur kostur fyrir þann stað sem veitan er ætluð fyrir. Óskað er eftir að það sé gert á stuttan og skilmerkilegan hátt. Tekið verður mið af niðurstöðum vinnuhóps á vegum Orkuráðs um hagkvæmni nýrra hitaveitna og af niðurstöðum vinnuhóps á vegum iðnaðarráðherra um ávinning og aðgerðir stjórn- valda til að lækka kostnað við hitun íbúðarhúsnæðis frá núní 2007.
- Styrkir eru hvorki veittir til borana, né virkjunar jarðhita án undangenginna rannsókna.
- Styrkir eru einungis veittir til nýrra verkefna þ.m.t. nýrra áfanga í jarðhitaleit. Ekki er veittur styrkur fyrir þegar áföllnum kostnaði vegna eldri verkefna eða áfanga.
- Styrkupphæð er að jafnaði ekki hærri en 5 m.kr. og er miðað við að framlag umsækjanda sé a.m.k. 50% af heildarkostnaði við verkefnið.
- Greiðsla styrks fer fram í áföngum og er miðað við að fyrsta greiðsla sé við undirritun samnings um styrkveitinguna eða upphaf framkvæmda og aðrar greiðslur miðast við framvindu verksins, sem nánar er kveðið á um í samningi. Síðasta greiðsla fer fram þegar verki er lokið og lokaskýrslu um framkvæmd þess er skilað. Þá þurfa afrit allra gagna að hafa borist Orkustofnun, borskýrslur, uppdrættir, skýrslur, greinargerðir o.þ.h.
- Hafi styrkur ekki verið nýttur innan eins árs frá því að hann var veittur fellur hann sjálfkrafa niður. Styrkþegi getur óskað eftir lengri fresti. Orkuráð leggur mat á rökstuðning styrkþega. Heimilt er að framlengja gildistíma styrkveitingarinnar um allt að eitt ár í senn.
