Umhverfisstefna Orkustofnunar
Meðal hlutverka Orkustofnunar er að annast yfirlitsrannsóknir á orkulindum landsins og skilyrðum til hagnýtingar þeirra.
Þetta hlutverk vill stofnunin rækja með eftirfarandi að leiðarljósi:
- Orkuvinnsla og nýting verði í sem bestri sátt við umhverfið
- Orkubúskapur landsins verði í sem ríkustum mæli sjálfbær
Að ofangreindum markmiðum vill Orkustofnun vinna m.a. með eftirfarandi leiðum:
- Að greina helstu umhverfisáhrif þegar við frumathuganir stofnunarinnar á virkjunarkostum og annarri nýtingu auðlinda.
- Að vinna að heildstæðu yfirliti um virkjunarkosti, hagkvæmni þeirra og umhverfisáhrif og í kjölfarið flokkun kostanna eftir samræmdu mati á verndargildi, hagkvæmni og þjóðarþörfum.
- Að benda á leiðir til að ná sem bestri nýtingu þeirra auðlinda sem teknar eru til vinnslu.
- Að standa fyrir rannsóknum á þáttum sem tryggja eftir föngum sjálfbæra nýtingu orkulindanna og laga orkuvinnslu að náttúrulegri endurnýjun þeirra.
- Að stuðla að og taka þátt í starfi til að bæta orkunýtingu þjóðinni til hagsældar, afla upplýsinga og benda á leiðir í því sambandi.
- Að efla athuganir stofnunarinnar á leiðum til að nýta innlendar, endurnýjanlegar orkulindir í stað innfluttrar orku og taka þátt í samstarfi um verkefni á því sviði.
- Að eiga góða samvinnu við stjórnvöld, stofnanir, fyrirtæki, samtök og einstaklinga um markmið og leiðir í umhverfismálum.
Að auki mun stofnunin hér eftir sem hingað til leggja áherslu á góða umgengni í starfi sínu úti í náttúrunni og virða lög, reglur og góða siði í því sambandi. Þá mun stofnunin hafa umhverfissjónarmið í heiðri við innkaup og rekstur.
Til fyllingar stefnu sinni og leiðum í umhverfismálum vísar stofnunin til skýrslu Orkustofnunar: Orkuvinnsla í sátt við umhverfið (Hákon Aðalsteinsson, OS - 99014).
