Jafnréttisáætlun Orkustofnunar
Markmið
Að allir starfsmenn hafi sömu tækifæri og sambærileg réttindi, óháð kynferði, þjóðerni, stöðu og högum. Þannig verði allir metnir á grundvelli einstaklingsbundinna eiginleika. Þetta skal gilda um rétt til starfa, aðstöðu, endurmenntun og kjör fyrir sambærileg störf. Og að enginn verði fyrir misrétti af neinu tagi.
Orkustofnun stefnir að þessu markmiði með eftirfarandi aðgerðum:
- Gæta jafnréttis við ákvarðanatökur sem snúa að starfsfólki.
- Gera starfsmönnum kleift að samræma atvinnu og fjölskyldulíf. Þetta skal gert með sveigjanlegum vinnutíma og með því að kynna starfsmönnum reglur um fæðingarorlof og tryggja að þeir geti samræmt vinnuna að sínum þörfum.
- Tryggja samstöðu meðal starfsmanna með því að skipuleggja atburði sem starfsmenn geta sótt.
- Gæta þess að starfsfólk lenti ekki utan hópsins og tryggja að engin verði fyrir einelti af hópnum.
- Brýna fyrir starfsmönnum að hvorki einelti eða kynferðisleg áreitni verði liðin og láta þá vita hvernig þeir eigi að bregðast við verði þeir fyrir slíku.
- Gæta þess að auglýsingar séu hlutlausar á kyn nema þegar áætlunin er að ráða frekar annað kynið til að jafna kynjaskiptingu og þá skal það koma fram í auglýsingunni.
Ráðningar
Orkustofnun mun við auglýsingar á lausum störfum á stofnuninni hér eftir sem hingað til vekja athygli á því markmiði stofnunarinnar að jafna hlut kynjanna og stuðla að æskilegri aldursdreifingu. Stofnunin mun í slíkum auglýsingum hvetja það kyn sem á hverjum tíma er í minni hluta til að sækja um störfin sem eru í boði.
Kjaramál
Orkustofnun mun sjá til þess að laun og önnur starfskjör eða hlunnindi séu jöfn fyrir sömu eða sambærileg störf. Með jöfnum launum er átt við að laun skuli ákveðin á sama hátt fyrir konur og karla og að þau viðmið sem lögð eru til grundvallar launaákvörðun feli ekki í sér kynjamismunun.
Endurmenntun
Það er markmið Orkustofnunar að hafa ávallt í sínu starfsliði hæfasta starfsfólkið á hverju sviði. Til að svo megi verða hvetur stofnunin starfsfólk til að afla sér endur- og símenntunar. Orkustofnun mun sérstaklega hvetja einstaklinga af því kyni sem síður aflar sér endur- og símenntunar til að auka á þekkingu sína með þessum hætti. Þá mun Orkustofnun leitast við að láta starfsmenn vita af slíkum möguleikum.
Fjölskyldustefna
Orkustofnun hefur lagt mikla áherslu á að tryggja möguleika starfsfólks til að samræma starfskyldur þannig að þær samrýmist sem best þörfum fjölskyldunnar. Starfsmenn hafa sveigjanlegan vinnutíma, möguleiki er á því að vinna hlutastörf og stofnunin er opin fyrir fleiri möguleikum eftir því sem eðli starfs og aðstæður leyfa. Konum og körlum skal gert kleift að minnka við sig tímabundið til að sinna fjölskylduábyrgð t.d. vegna veikinda barna eða annarra fjölskyldumeðlima.
Gengið er út frá því að foreldrar ungbarna taki það fæðingarorlof sem þeir eiga rétt á og eru feður sérstaklega hvattir til að nýta sér sinn rétt til fæðingarorlofs. Karlar eru hvattir til að vera heima hjá veikum börnum til jafns við konur í samræmi við þá stefnu að allir starfsmenn njóti sömu réttinda óháð kyni.
Svo starfsmenn geti notið réttar sem að framan greinir skal m.a. auðveldað starfsfólki að koma aftur til starfa eftir fæðingar- eða foreldraorlof og eftir leyfi úr vinnu vegna óviðráðanlegra og nauðsynlegra fjölskylduaðstæðna.
Þá skulu starfsmenn minntir á að hvort foreldri um sig á rétt á 13 vikna launalausu foreldraorlofi þar til barnið nær 8 ára aldri skv. samkomulagi við vinnuveitanda.
Vellíðan í starfi
Allir starfsmenn eiga rétt á því að komið sé fram við þá af virðingu og kynferðisleg áreitni, einelti eða annað ofbeldi verður ekki liðið. Starfmaður sem verður fyrir einhvers konar misferli getur leitað til starfsmannastjóra sem leiðbeinir honum í slíkum málum og veitir nauðsynlega aðstoð. Starfsmannastjóri skal taka við þeim upplýsingum sem honum berast með opnum hug.
Kynning
Jafnréttisáætlun skal kynnt fyrir starfsmönnum stofnunarinnar. Nýjum starfsmönnum skal gerð grein fyrir efni áætlunarinnar. Jafnréttisáætlun skal vera aðgengilega starfsmönnum í starfsmannahandbók og á innra neti stofnunarinnar.
Endurskoðun
Fara skal yfir stöðu jafnréttismála hjá Orkustofnun og jafnréttisáætlun endurskoðuð þriðja hvert ár.
Ábyrgð
Ábyrgð á jafnréttismálum stofnunarinnar og framgangi þeirra er í höndum orkumálastjóra í samráði við starfsmannastjóra.
Guðni A. Jóhannesson
Orkumálastjóri
Reykjavík, 13. júlí 2011
