Orkuöryggi á Vestfjörðum - samkeppnisstaða og atvinnuþróun

í nóvember  2009 skipaði iðnaðarráðherra, Katrín Júlíusdóttir, ráðgjafahóp til þess að fara yfir fyrirliggjandi tillögur Landsnets um leiðir til að bæta raforkuöryggi á Vestfjörðum og leggja mat á það til hvaða aðgerða þurfi að grípa til að bæta samkeppnisstöðu Vestfjarða til atvinnuuppbyggingar í orkufrekum iðnaði.

Samkvæmt erindisbréfinu er verksvið ráðgjafahópsins eftirfarandi:


  • Fara yfir fyrirliggjandi tillögur Landsnets um leiðir til að bæta raforkuöryggi á Vestfjörðum.
  •  Kanna viðhorf núverandi rekstraraðila á Vestfjörðum til ástands raforkukerfisins og áhrif þess á áframhaldandi atvinnuuppbyggingu.
  • Fjalla um mismunandi möguleika á að nýta raforku til atvinnuuppbyggingar á Vestfjörðum á næstu árum.
  • Draga upp mismunandi sviðsmyndir fyrir atvinnuþróun á Vestfjörðum og meta samsvarandi þörf fyrir afl og orku.
  • Meta áhrif raforkuöryggis á möguleika til atvinnuuppbyggingar og hagvaxtar.
  • Fara yfir þá möguleika sem fyrir hendi eru til aukinnar raforkuframleiðslu á Vestfjörðum og hvernig sú framleiðsla getur bætt gæði raforkukerfisins.
  • Fara yfir mismunandi kosti þess að bæta tengingar fyrir flutning raforku milli Vestfjarða og annarra landshluta.
  • Gera samanburð á virkni og hagkvæmni mismunandi kosta með hliðsjón af markmiðum verkefnisins
  • Gera tillögur um aðgerðir til þess að bæta raforkuöryggi á Vestfjörðum og leggja mat á það til hvaða aðgerða þurfi að grípa til að bæta samkeppnisstöðu Vestfjarða til atvinnuuppbyggingar í orkufrekum iðnaði.

 
Þess er farið á leit að starfshópurinn hæfi störf nú þegar og skilaði ráðherra greinargerð fyrir lok ársins. Orkustofnun var falin umsjón með störfum hópsins.


Í ráðgjafahópinn voru skipuð þau:


  • Guðni A. Jóhannesson, Orkumálastjóri, formaður
  • Matthildur  Helga- og Jónudóttir, framkvæmdastjóri Snerpu á Ísafirði
  • Þorgeir Pálsson, framkvæmdastjóri Atvinnuþróunarfélags Vestfjarða

Skýrslur ráðgjafahópsins:

 

          Orkuöryggi á Vestrfjörðum - áhrif á samkeppnisstöðu og atvinnuþróun