Korta- og teikningasafn Orkustofnunar
Flokkar kortasafns
Kortasafn Orkustofnunar samanstendur annars vegar af kortum sem orðið hafa til í starfsemi stofnunarinnar og hjá forvera hennar Raforkumálaskrifstofunni og hins vegar af kortum sem aflað hefur verið frá ýmsum aðilum hér á landi og erlendis. Safnið var lengi óskráð, en samræmd rafræn skráning safnkostsins í kortabrunn OS hófst árið 2008.
Kortasafninu má skipta í fimm meginhluta:
- Orkugrunnkort, gefin út af Raforkumálaskrifstofunni og arftökum hennar; Orkustofnun, Landsvirkjun og Rarik
- Jarðkönnunarkort (jarðfræðikort og vatnafarskort), gerð á vegum Orkustofnunar, ÍSOR og Vatnamælinga
- Teikningasafn (skráð safn Teiknistofu OS 1938-1998)
- Kort í skýrslum og greinagerðum OS.
- Útgefin Íslandskort annarra innlendra og erlendra stofnana og fyrirtækja
Leit í kortaflokkum Orkustofnunar
Orkugrunnkort og jarðkönnunarkort eru þeir kortaflokkar þar sem Orkustofnun ber ábyrgð á skráningu og varðveislu. Skráningu kortanna í gagnagrunn Orkustofnunar lauk á árinu 2011, en í skránni koma fram helstu skráningarþættir sem tengjast kortunum. Með tengingu á gagnatöflum í gagnagrunni og staðsetningargögnum í landupplýsingakerfi voru síðan gerðar formskrár til birtingar í Orkuvefsjá (OVS). Þar er nú opið aðgengi að upplýsingum um öll kortin í þessum flokkum og mögulegt að skoða reiti með svæðisþekjum og myndir af öllum kortunum. Nokkrir efnisþættir úr skránni yfir orkugrunnkort og jarðkönnunarkort hafa nú (2013) einnig verið valdir og gerðir leitarhæfir á vefsíðu stofnunarinnar. Með því að smella hér er hægt að leita að upplýsingum um kortin eftir nokkrum leiðum:
- Safnnúmer. Númer korts í kortaskrá OS. Safnnúmer birtast í fellilista þar sem hægt er að smella á númerið og fá fram mynd af kortinu í sérstökum glugga (Dæmi: Kort sem í skrám OS er merkt os_1007, er hér skráð 1007).
- Kortnúmer. Númer korts í kortaröð. Orkugrunnkort hafa alltaf númer en aðeins hluti jarðkönnunarkorta (Dæmi: 3636-21).
- Titill. Heiti korts, oft í styttri útgáfu. Orðaleit möguleg.
- Kortaröð. Kortin í skránni eru úr tveimur kortaflokkum, annað hvort orkugrunnkort - OGK eða jarðkönnunarkort - JKK
- Útgáfuár. Hér er fellilisti með útgáfuárum korta
- Formgerð. Form kortsins má velja hér eftir fjórum mismunandi flokkum í fellilista: filma/útprentað, ljósritað, prentað/útgefið og útprentað
- Efnisflokkur. Hér er kortunum raðað eftir 16 efnisflokkum í fellilista. Í mörgum flokkum er um jarðfræðikort að ræða þar sem kortin eru skráð eftir sértækari undirflokkum (Dæmi: berggrunnskort, jarðgrunnskort, jarðhitakort …)
- Ábyrgð. Ábyrgðaraðili flestra kortanna er Orkustofnun, en í flokki orkugrunnkorta eru ábyrðgðaraðilar einnig Landsvirkjun og Rarik. Í flokki jarðkönnunarkorta er Orkustofnun alltaf aðili að gerð kortsins, en ef fleiri koma að gerðinni eru skráð OS o.fl. Með því að smella á safnnúmer má sjá skönnun á kortum þar sem upplýsingar m.a. um alla ábyrgðaraðila og höfunda koma fram
Leitarniðurstöður sýna safnnúmer, kortnúmer, titil, útgáfuár, kortaröð, ábyrgð, formgerð og efnisflokk korta. Ef þörf er á nánari upplýsingum úr kortaskránni, vinsamlegast hafið samband við Orkustofnun (Þórunn E. Sighvats).
Veggspjöld og greinar
Vefsjár og gögn Orkustofnunar
Aðgengi að Orkugrunnkortum í Orkuvefsjá
Veggspjöldin voru birt á málþingi um varðveislu landfræðilegra gagna sem haldið var í Þjóðarbókhlöðunni 23. september 2010 og á ráðstefnunni “Landupplýsingar 2010” sem haldið var í Veisluturninum, Kópavogi, 23. október 2010.
Landræn gögn – Stefnuleysi í varðveislumálum
Vefsjár – Ábyrgð á afritun og varðveislu heimilda
Veggspjöldin voru birt á aðalfundi Orkustofnunar sem haldinn var í ráðstefnuhúsinu Hörpu (Rímu) 30. mars 2012 og á ráðstefnunni “Landupplýsingar 2012” sem haldin var á Hilton Reykjavík, Nordica, 25. október 2012.
Þorvaldur Bragason (2012): Afritun og varðveisla heimilda um íslenskar vefsjár. Landabréfið (26) 57-62.
Þorvaldur Bragason (2013): Landræn gögn á Íslandi. Um skort á heildstæðri varðveislustefnu og þverfaglegu námi. Bókasafnið (37) (óbirt)
