Orkuöryggi á Vestfjörðum – áhrif á samkeppnisstöðu og atvinnuþróun- skýrsla ráðgjafahóps sem iðnaðarráðherra skipaði í nóvember 2009.
Ráðgjafahópurinn hefur nú skilað skýrslu og kynnti Katrín Júlíusdóttir hana í vikunni fyrir Vestfirðingum á tveimur fundum á Patreksfirði og Ísafirði. Í skýrslu hópsins er gerð grein fyrir mismunandi sviðsmyndum um úrbætur og framtíðaruppbyggingu flutningskerfisins og hvernig megi styrkja það, t.d. með nýjum smærri og stærri virkjunum á svæðinu. Þá leggur ráðgjafahópurinn til að í samráði við Landsnet verði gerð áætlun um hringtengingu raforkuflutnings fyrir Vestfirði og að auki heildstæð rannsóknaráætlun fyrir raforkuframleiðslu á Vestfjörðum.
Í ráðgjafahópnum voru Guðni A Jóhannesson, orkumálastjóri, Matthildur Helga- og Jónudóttir, framkvæmdastjóri Snerpu á Ísafirði og Þorgeir Pálsson, formaður Atvinnuþróunarfélags Vestfjarða (til nóv. 2010).
