Wavefield-InSeis leitar að kolvetni á Drekasvæðinu
Hljóðbylgjumælingar með mæliskipi fyrirtækisins munu væntanlega hefjast innan nokkurra daga. Um er að ræða viðbót við fyrri mælingar sama fyrirtækis á svæðinu árið 2001 í þeim tilgangi að skoða betur áhugaverð fyrirbæri og fá þéttari og nákvæmari gögn á fyrra mælingasvæði. Leyfið gildir í þrjú ár.
Leitarleyfi veitir ekki einkarétt til rannsókna né heldur rétt til vinnslu á olíu eða gasi í kjölfar rannsókna. Olíuleitarfyrirtæki selja hins vegar þeim olíufyrirtækjum gögn sín, sem áhuga hafa á að fá einkaleyfi til rannsókna og vinnslu á afmörkuðum svæðum. Fyrirhugað er útboð einkaleyfa til rannsókna og vinnslu kolvetna á norðanverðu Drekasvæðinu um miðjan janúar 2009. Orkustofnun fær öll gögn sem safnað er samkvæmt leitarleyfinu til varðveislu og getur notað þau í þágu þekkingaröflunar ríkisins um auðlindir, en gætir jafnframt trúnaðar um þau gagnvart öðrum.
