Fréttir

Orkustofnun, Rannís og  stjórnsýslustofnanir átta annarra Evrópulanda hljóta styrk að upphæð tæpum 2 milljónum evra - 27/4/2012

Orkustofnun, Rannís og  stjórnsýslustofnanir átta annarra Evrópulanda hljóta styrk að upphæð tæpum 2 milljónum evra úr 7. Rammaáætlun Evrópusambandsins í þágu jarðhitaþróunar í Evrópu. Orkustofnun sem fer með stjórn verkefnisins fær um 600.000 evrur til verkefnisins. 

 

Lesa meira

Uppgjöri tekjumarka Landsnets fyrir árin 2006-2010 er nú lokið - 27/4/2012

Orkustofnun hefur nú lokið við uppgjör tekjumarka Landsnets fyrir árin 2006-2010. Samkvæmt raforkulögum, nr. 65/2003, skal Orkustofnun setja flutningsfyrirtækinu tekjumörk, en tekjumörk eru þær hámarkstekjur sem fyrirtækinu er leyfilegt að innheimta með gjaldskrá sinni og eru í aðalatriðum ákveðin út frá rekstrarkostnaði, arðsemi og afskriftum. Lesa meira

Fundur um orkumál heimilanna - 26/4/2012

Orkusetur og Iðnaðarverkfræði, vélaverkfræði og tölvunarfræðideild Háskóla Íslands boða til fundar um orkumál heimila föstudaginn 27. apríl 2012, kl. 13-15:30 í Orkugarði, Grensásvegi 9, 108 Reykjavík. Lesa meira

Eldsneytisspá 2012-2050 - 24/4/2012

Eldsneytishópur Orkuspárnefndar hefur gefið út nýja eldsneytisspá sem nær allt til ársins 2050.

Lesa meira

Afstaða til útgáfu sérleyfa mun liggja fyrir í síðasta lagi í nóvember 2012 - 23/4/2012

Orkustofnun vinnur að mati á umsóknum sem bárust í öðru útboði á Drekasvæðinu. Lesa meira

Framkvæmdir hefjast við nýja fiskeldisstöð við Reykjanesvirkjun - 20/4/2012

HS Orka útvegar fiskeldinu rafmagn og heitan hreinan sjó, sem nú rennur ónýttur til sjávar.

senegal_flura_003

Lesa meira

Fundur um orkumál heimila - 18/4/2012

Orkusetur og Iðnaðarverkfræði, vélaverkfræði og tölvunarfræðideild Háskóla Íslands boða til fundar um orkumál heimila föstudaginn 27. apríl 2012, kl. 13-15:30 í Orkugarði, Grensásvegi 9, 108 Reykjavík.

Lesa meira

A Power Rush - 18/4/2012

Orkumálastjóri birti nýlega grein í Public Service Review þar sem fjallað er um þróun endurnýjanlegrar orku og hagvöxt á Íslandi

Lesa meira

Orkustofnun bárust þrjár umsóknir um sérleyfi til rannsókna og vinnslu kolvetnis á Drekasvæðinu - 2/4/2012

Orkustofnun fer með leyfisveitingavald samkvæmt lögum nr.13/2001 um leit, rannsóknir og vinnslu kolvetnis. Annað útboð vegna sérleyfa á Drekasvæðinu hófst þann 3. október 2011 og lauk í dag, 2. apríl. 


Eftirtalin fyrirtæki sóttu um sérleyfi:

·       Eykon, óskráð félag.

·       Faroe Petroleum og Íslenskt kolvetni ehf.

·       Valiant Petroleum og Kolvetni ehf.


Lesa meira

Ársfundur Orkustofnunar var haldinn í Hörpu síðastliðinn föstudag - 2/4/2012

Iðnaðarráðherra og GuðniIðnaðarráðherra, Oddný G. Harðardóttir og Orkumálastjóri, Guðni A. Jóhannesson fluttu ávarp í upphafi fundar. Áhugaverð erindi voru flutt af Starfsfólki Orkustofnunar og Bjarna Bjarnasyni forstjóra Orkuveitu Reykjavíkur. 

Lesa meira

Orkustofnun boðar til opins blaðamannafundar í dag, mánudaginn 2. apríl, klukkan 16:30   - 2/4/2012

Niðurstaða útboðs sérleyfa til rannsókna og vinnslu kolvetnis á Dekasvæðinu verður kynnt

Lesa meira