Fréttir

Orkustofnun svarar beiðni Landsnets um breytingar á gjaldskrá - 21/12/2012

Orkustofnun barst erindi Landsnets þann 19. nóvember þar sem kynntar voru tillögur að hækkunum á gjaldskrá fyrirtækisins vegna flutnings á raforku. Orkustofnun telur að ekki liggi fyrir nægilegar upplýsingar til að heimila hækkun á gjaldskrá Landsnets vegna flutnings til almennra notenda á þessu stigi en gerir ekki athugasemdir við aðrar tillögur.

Lesa meira

Jólaerindi Orkumálastjóra - 21/12/2012

Orkumálastjóri fór yfir farinn veg í jólaerindi sínu þann 17. desember en nú eru 5 ár liðin frá því hann tók við starfi orkumálastjóra.  Meðal þess sem hann fjallaði um var þróun og skipulag stofnunarinnar síðustu ár.

Lesa meira

Jólaerindi Orkumálastjóra í Orkugarði - 14/12/2012

Orkumálastjóri mun flytja árlegt jólaerindi í Víðgelmi fyrirlestrarsal Orkugarðs næstkomandi mánudag klukkan 11:00.

Lesa meira

Orkustofnun veitir umsögn um frumvarp til stjórnarskipunarlaga um nýja stjórnarskrá lýðveldisins Íslands. - 12/12/2012

Ný stjórnarskrá dregur skil milli eignarréttar til auðlinda í þjóðareign og eignarréttarheimilda sem landeigendur hafa til auðlindanýtingar. Þetta kemur fram í umsögn Orkustofnunar um frumvarp til stjórnarskipunarlaga um nýja stjórnarskrá lýðveldisins Íslands.

Lesa meira

Bætt frumorkunýtni og samfélag til fyrirmyndar - 6/12/2012

Bætt frumorkunýtni og samfélag til fyrirmyndar eru heiti verkefna sem kynnt verða næsta miðvikudag þann 12. desember í Víðgelmi fyrirlestrarsal Orkustofnunar.

Lesa meira

Norska ríkisolíufélagið Petoro tekur þátt í olíuleit á íslenska Drekasvæðinu - 3/12/2012

Orkustofnun hefur nú lokið umfjöllun sinni um tvær umsóknir um sérleyfi fyrir rannsóknir og vinnslu kolvetnis (olíu og gass) á Drekasvæðinu. Með svari Norðmanna, sem barst Orkustofnun í dag, 3. desember, hefur verið ákveðið að Petoro, olíufélag norska ríkisins, verði þátttakandi í báðum leyfunum, að fjórðungs hlut í hvoru leyfi fyrir sig eins og samningur Íslands og Noregs gerir ráð fyrir.

Lesa meira

Hvetja ætti til frekari þróunar jarðhitanýtingar - 22/11/2012

Þetta voru lokaorð Günthers Öttinger framkvæmdastjóra ESB um orkumál í ræðu sem hann hélt á vinnufundi um nýtingu jarðhita  á þéttbýlum svæðum í Brussel í síðustu viku. Orkumálastjóri sótti fundinn.

Lesa meira

GEORG - Klasasamstarf í jarðhitarannsóknum með opið hús - 16/11/2012

Fimmtudaginn 22. nóvember næstkomandi mun GEORG standa fyrir kynningu á átta verkefnum sem hafa fengið stuðning og vinna að markmiðum klasasamstarfsins.

Lesa meira

Vel heppnuð kynning um Þróun stýriaðferða til aukinnar hagkvæmni íslenska virkjanakerfisins var haldin síðasta miðvikudag. - 12/11/2012

Vel heppnuð kynning um Þróun stýriaðferða til aukinnar hagkvæmni íslenska virkjanakerfisins var haldin síðasta miðvikudag í Víðgelmi fyrirlestrarsal Orkugarðs.

Lesa meira

Þróun stýriaðferða til aukinnar hagkvæmni íslenska virkjanakerfisins - 1/11/2012

Þorbergur Steinn Leifsson Byggingarverkfræðingur flytur næsta erindi vetrarins sem fjallar um þróun stýriaðferða til aukinnar hagkvæmni íslenska virkjanakerfisins. Fyrirlesturinn sem haldinn er í Víðgelmi fyrirlestrarsal Orkustofnunar byrjar klukkan 12:00, miðvikudaginn 7. nóvember og er öllum frjálst að mæta.

Lesa meira

Orkusetur fær viðurkenningu fyrir nýsköpun í opinberum rekstri fyrir varmadæluvef - 30/10/2012

Orkusetur fékk í dag afhenda viðurkenningu fyrir nýsköpun í opinberri þjónustu og stjórnsýslu á árinu 2012. Viðurkenningin var fyrir varmadæluvef sem er gagnvirk reiknivél þar sem hægt er að finna helstu upplýsingar um gerðir og virkni varmadæla á mjög einfaldan hátt.

 

Lesa meira

Íslensk raforkufyrirtæki geta selt upprunaábyrgðir til evrópskra fyrirtækja - 29/10/2012

Upplýsingar þar að lútandi munu sjást á rafmagnsreikningum íslenskra neytenda

Lesa meira

„Dumbur hefir konungur heitið“ - Örnefnagjöf á landgrunni Íslands - 26/10/2012

Nafnfræðifélagið heldur fræðslufund laugardaginn 27. október, kl. 13.15 í stofu 106 í Odda, Háskóla Íslands þar sem Haukur Jóhannesson jarðfræðingur mun flytja erindi um örnefnagjöf á landgrunni Íslands

Lesa meira

Áhugasamir gestir fjölmenntu á kynningu um vindmyllur - 17/10/2012

Góð aðsókn var á fyrsta erindi vetrarins sem haldið var í dag. Sæþór Ásgeirsson fjallaði um hönnun á vindmyllu fyrir sumarhús á Íslandi. fundargestir--vindmylla

Lesa meira

Íslendingar aðilar að samkomulagi um innleiðingu vetnisrafbíla - 11/10/2012

MoU-signing-NyOrka

Bílaframleiðendur sjá Norðurlöndin sem lykilsamstarfsaðila þegar kemur að innleiðingu vetnisrafbíla á árunum eftir 2014. Þetta kom fram í samkomulagi sem undirritað var nú á dögunum á milli nokkurra bílaframleiðanda og fulltrúa Norrænu þjóðanna.

Lesa meira

Orkustofnun fer af stað með kynningar á verkefnum sem styrkt hafa verið af Orkusjóði - 10/10/2012

vindmylla

Fyrsta erindi vetrarins verður næstkomandi miðvikudag þann 17. október, 2012 klukkan 12:00-13:00 í fyrirlestrarsal Orkustofnunar að Grensásvegi 9. Nokkur verkefni sem Orkusjóður hefur styrkt hafa þegar verið valin til kynningar en stefnt er að því að halda slík erindi reglulega í vetur.

Lesa meira

Orkustofnun veitir Sveitarfélaginu Fjarðabyggð nýtingarleyfi á grunnvatni - 8/10/2012

Orkustofnun veitir Sveitarfélaginu Fjarðabyggð nýtingarleyfi á allt að 120 L/s af grunnvatni úr borholum á tilteknu landi Tandrastaða í Fannardal í Norðfirði.

Lesa meira

Orkustofnun sendir út drög að leyfum til rannsókna og vinnslu kolvetnis - 5/10/2012

Orkustofnun hefur í meginatriðum lokið úrvinnslu á umsóknum vegna útboðs sérleyfa á Drekasvæðinu.

Lesa meira

Árlegir fyrirlestrar nemenda Jarðhitaskólans verða næsta föstudag - 26/9/2012

Nemendur Jarðhitaskóla Sameinuðu þjóðanna halda fyrirlestra næsta föstudag þann 28. september klukkan 09:00 í Víðgelmi, fyrirlestrasal Orkugarðs.

Lesa meira

Svíar búa til App sem auðveldar neytendum val á ljósaperum - 21/9/2012

Sænska orkumálastofnunin hefur nú útbúið App sem auðveldar neytendum val á ljósaperum. Með Appinu er meðal annars hægt að fá upplýsingar um sparnað, lýsingu og orkunotkun. 

Lesa meira

Málþing um þróunarsamvinnu - 20/9/2012

Kenya_CDSC_2011Félag Sameinuðu þjóðanna stendur fyrir málþingi í samstarfi við Háskóla Sameinuðu þjóðanna föstudaginn 21. september, klukkan 15.00 í Öskju, Háskóla Íslands.

Lesa meira

Verkefni tengd Orkusparnaði bera árangur - 20/9/2012

grimsey-11506Orkusetur er þátttakandi í tveimur evrópuverkefnum á sviði orkunotkunar heimila, annars vegar Promise um möguleika heimila til orkusparnaðar og hinsvegar Octes þar sem áhersla er lögð á orkuvöktun til að auka meðvitund íbúa um orkunotkun.

Lesa meira

Möguleikar á metanvinnslu skoðaðir á Flótsdalshéraði - 19/9/2012

metan4Avinnumálanefnd sveitarfélagsins, Hitaveita Egilsstaða og Fella og Orkusetur láta nú vinna skýrslu um hagkvæmni þess að nýta heita vatnið í gerjunarstöð fyrir lífrænan úrgang en þar yrði framleitt bæði metan á bíla og áburður.  

 

Lesa meira

Vel heppnuð jarðhitaleit að Möðruvöllum í Kjós - 14/9/2012

borhola-kjos-isorFyrr á þessu ári veitti Orkusjóður, Kjósarhreppi, lán til jarðhitaleitar að Möðuvöllum í Kjós. 

Lesa meira

Orkusetur fjallar um sparperur og glóperur - 13/9/2012

imagesTilskipun Evrópusambandsins um að sparperur komi í stað gömlu glóperunnar hefur tekið gildi. Framkvæmdastjóri Orkuseturs, Sigurður Ingi Friðleifsson, sat fyrir svörum í spallþætti á Bylgjunni nú á dögunum.

Lesa meira

Raforkuverð borið saman með einfaldri reiknivél - 12/9/2012

Raforkusala er á samkeppnismarkaði og hefur Orkusetur sem rekið er af Orkustofnun nú opnað reiknivél á netinu sem auðveldar neytendum val á orkusöluaðila.

Lesa meira

Raforkuhópur Orkuspárnefndar gefur út raforkuspá - 11/9/2012

raforkuspa-vefmyndRaforkuhópur Orkuspárnefndar hefur farið yfir forsendur síðustu raforkuspár, frá 2010, út frá nýjum gögnum sem borist hafa frá því spáin kom út.

 

Lesa meira

Orkustofnun gefur út Orkumál - 10/9/2012

orkumal-7Blaðið byggir á tölulegum upplýsingum frá árinu 2011. Þar er stiklað á stóru í helstu verkefnum raforkueftirlits á árinu ásamt því að fjallað er um raforkuvinnslu, raforkunotkun, verðlag á rafmagni, gæði raforku og afhendingaröryggi, dreifiveitur og flutningskerfi.

Lesa meira

Meistarafyrirlestur – verkefni styrkt af Orkjusjóði 2012 - 7/9/2012

Reynir Smári Atlason flytur fyrirlestur um verkefni sitt til meistaraprófs í umhverfis- og auðlindafræði frá Iðnaðarverkfræði-, vélaverkfræði- og tölvunarfræðideild Háskóla Íslands þann 11. september í VR-II stofu 158. Lesa meira

Orkustofnun tekur þátt í hitaveitudögum á Skagaströnd   - 6/9/2012

Hitaveitudagar á Skagaströnd voru haldnir dagana 31. ágúst og 1. september síðastliðinn, en til stendur að leggja hitaveitu þangað frá Blönduósi á næsta ári.

Lesa meira

Reiknilíkön og hönnun orkuvinnslukerfa - Norræn ráðstefna í Reykjavík - 6/9/2012

Orkustofnun í samstarfi við Scandinavian Simulation Society (SIMS) stendur fyrir ráðstefnu í Orkugarði dagana 4-6. október. forsida-sims


Lesa meira

Lokað frá kl. 14:30 í dag vegna útfarar - 31/8/2012

Skrifstofur Orkustofnunar, Íslenskra orkurannsókna og jarðhitaskólans verða lokaðar frá kl. 14:30 vegna útfarar Guðrúnar Bjarnadóttur.

Tilkynning um gögn í gagnagrunni Orkustofnunar - 22/8/2012

Á vegum Orkustofnunar hefur verið  starfræktur gagnagrunnur, sem byggir meðal annars á eldri rannsóknagögnum. Það er stefna Orkustofnunar að veita skuli aðgang að þeim gögnum stofnunarinnar sem ekki eru bundin kvöðum vegna höfundaréttar eða annarra réttinda þriðja aðila.

Lesa meira

Orkustofnun veitir Landsvirkjun rannsóknarleyfi vegna áætlana um virkjun í efri hluta vatnasviðs Stóru Laxár í Hrunamannahreppi - 25/7/2012

Landsvirkjun stefnir að því að rannsaka hagkvæmni þess að nýta rennsli Stóru Laxár og fall frá miðlunarlóni í Illaveri að fyrirhugaðri virkjun skammt frá Hrunakrók í Hrunamannahreppi.

Lesa meira

Tvær umsóknir um rannsóknarleyfi vegna virkjana í Skjálfandafljóti - 16/7/2012

Orkustofnun hefur nú til umfjöllunar tvær umsóknir er skarast um rannsóknarleyfi vegna fyrirhugaðra virkjana í Skjálfandafljóti, annars vegar frá Landsvirkjun vegna virkjana í ofanverðu fljótinu og hins vegar frá Hrafnabjargavirkjun hf. vegna virkjunar við Hrafnabjörg. Lesa meira

Úthlutun styrkja úr Orkusjóði - 12/7/2012

Miðvikudaginn 11. júlí afhentu Steingrímur J. Sigfússon, iðnaðarráðherra og Mörður Árnason, formaður orkuráðs, styrki úr Orkusjóði til rannsóknar- og kynningarverkefna fyrir árið 2012.

Lesa meira

Jarðhitaskóli Sameinuðu þjóðanna og Orkustofnun gefa út bækling um starfsemi jarðhitaskólans - 4/7/2012

Jarðhitaskólinn hefur verið starfræktur frá árinu 1979. Íslenska ríkið og Háskóli Sameinuðu þjóðanna stofnuðu skólann sem hefur verið starfræktur innan Orkustofnunar frá upphafi.

Lesa meira

Iðnaðarráðherra, Oddný G. Harðardóttir, kynnti niðurstöður útboðs á ráðstefnu um olíuvinnslu á norðurslóðum. - 29/6/2012

Í ræðu sinni á fundinum lagði hún mikla áherslu á að Ísland byggi tilveru sína nær alfarið á hreinleika hafsins og hreinni ímynd. Það væri ein helsta ástæðan fyrir því að íslensk stjórnvöld leggja ofuráherslu á að gera þurfi strangar öryggiskröfur til olíuborunar á heimskautasvæðinu.

Lesa meira

Orkusetur opnar samgönguvef - 26/6/2012

Á vefnum eru nýjar og uppfærðar reiknivélar sem aðstoða fólk við að minnka eldsneytisnotkun eða jafnvel skipta yfir í innlent og umhverfisvænna eldsneyti. Þar má finna upplýsingar um stöðu bílaflotans, olíunotkun og útblástur í samgöngum.

Lesa meira

Málþing um auðlindastefnu í Hörpu - 21/6/2012

Málþing um auðlindastefnu verður haldið í Hörpu föstudaginn 22. júni frá kl. 9 til 12.
Lesa meira

Opið samráðsferli um lagningu raflína í jörð - 19/6/2012

Á undanförnum árum hefur orkuframleiðsla á Íslandi aukist mjög og jafnframt gagnrýni á neikvæð umhverfisáhrif hennar.

Lesa meira

Orkustofnun veitir Íslenskri matorku ehf. rannsóknarleyfi á heitu og köldu vatni - 6/6/2012

Orkustofnun veitir Íslenskri matorku ehf. rannsóknarleyfi á heitu og köldu vatni á Keilisnesi í landi Flekkuvíkur og Kálfatjarnar á Vatnsleysuströnd, í sveitarfélaginu Vogum.

Lesa meira

Daily mail birtir grein um heimsókn breska orkumálaráðherrans til Íslands og mögulegt samstarf þjóðanna - 5/6/2012

Eftir vel heppnaða heimsókn orkumálaráðherrans birtist grein í Daily mail um samstarf Íslendinga og Breta í orkumálum. Í greininni segir frá því hvernig hægt væri að nýta jarðhita til að hita upp öll heimili Bretlands og að auki væri mögulegt að framleiða rafmagn sem myndi duga til að mæta fimmtungi raforkuþarfar landsins.

Lesa meira

Morgunverðarfundur um olíu á Drekasvæðinu í Arionbanka - 5/6/2012

Þórarinn Sveinn Arnarson, verkefnisstjóri olíuleitar hjá Orkustofnun mun flytja erindi á ráðstefnunni. Að auki munu flytja erindi fyrirlesarar frá Nordea Markets og norska fjármálaráðuneytinu.

Lesa meira

Viljayfirlýsing um samstarf Íslendinga og Breta í orkumálum undirrituð - 1/6/2012

Oddný G Harðardóttir, iðnaðarráðherra og Charles Hendry, orkumálaráðherra Bretlands undirrituðu nú á dögunum í Hellisheiðarvirkjun viljayfirlýsingu um aukið samstarf ríkjanna á sviði orkumála og er sérstök áhersla lögð á hagnýtingu endurnýjanlegra orkugjafa.

Lesa meira

Náttúran, auðlindirnar og nýja stjórnarskráin – Hvaða áhrif mun ný stjórnarskrá hafa á auðlindanýtingu og náttúruvernd? - 16/5/2012

Í erindi sínu á fundi stjórnarskrárfélagsins fjallaði Kristinn Einarsson, yfirverkefnistjóri, meðal annars um hlutverk Orkustofnunar og þær breytingar sem hafa orðið og eru fyrirséðar,  þá setti hann þær í samhengi við það sem segir um auðlindamálin í tillögu að nýrri stjórnarskrá sem stjórnlagaráð hefur lagt fram.

Lesa meira

Orkustofnun svarar ásökunum Landverndar - 11/5/2012

Í kjölfar þess að formaður Landverndar hefur ásakað Orkustofnun um að starfsmaður stofnunarinnar, Skúli Thoroddsen, hafi verið vanhæfur til að undirrita umsögn stofnunarinnar um þingsályktunartillögu um áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða, vill Orkustofnun koma eftirfarandi á framfæri.

Lesa meira

Markmiðum um sjálfbæra uppbyggingu raforkuframleiðslunnar stefnt í hættu - 8/5/2012

Það er mat Orkustofnunar að með þessu verði markmiðum um sjálfbæra uppbyggingu raforkuframleiðslunnar stefnt í hættu, segir í umsögn Orkustofnunar um tillögu til þingsályktunar um áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða sem nú liggur fyrir Alþingi. 

 

Lesa meira

Orkusetur opnar fræðsluforrit um virkjanir - 7/5/2012

Orkusetur hefur nú smíðað gagnvirkt netkennsluforrit um virkjanir sem hafa yfir 10 MW af uppsettu afli. Þar má finna yfirlitskort og helstu tölfræðiupplýsingar um vatnsafls og jarðvarmavirkjanir á Íslandi. Forritið er afar einfalt í notkun og einungis þarf að nota tölvumúsina við lausn verkefna.

Lesa meira

Orkustofnun, Rannís og  stjórnsýslustofnanir átta annarra Evrópulanda hljóta styrk að upphæð tæpum 2 milljónum evra - 27/4/2012

Orkustofnun, Rannís og  stjórnsýslustofnanir átta annarra Evrópulanda hljóta styrk að upphæð tæpum 2 milljónum evra úr 7. Rammaáætlun Evrópusambandsins í þágu jarðhitaþróunar í Evrópu. Orkustofnun sem fer með stjórn verkefnisins fær um 600.000 evrur til verkefnisins. 

 

Lesa meira