Fréttir

Sjálfbær orkukerfi 2050 - Norræni Orkusjóðurinn auglýsir eftir tillögum að rannsóknarverkefnum. - 27/10/2010

Þau svið sem lögð er áhersla á, eru endurnýjanlegir orkugjafar, markaður og dreifikerfi og vistvænar samgöngur. Í umsókninni þarf að leggja áherslu á a.m.k. tvö eða þrjú ofangreind svið.

Lesa meira

Lokað hjá Orkustofnun frá 14:25 vegna kvennafrídags - 25/10/2010

Í tilefni kvennafrídagsins hefur Orkustofnun ákveðið að loka móttökunni að Grensásvegi 9 frá kl. 14:25. Þetta er gert til að gefa þeim konum sem starfa hjá Orkustofnun tækifæri til að taka þátt í hátiðahöldum í tilefni dagsins.
Lesa meira

Norræna ráðherranefndin býður sveitarfélögum á Norðurlöndum til samkeppni um titilinn Norrænt orkusveitarfélag 2011 - 25/10/2010

Norrænu orkumálaráðherrarnir hafa í dag formlega blásið til samkeppni um titilinn ,,Norrænt orkusveitarfélag”. Samkeppninni er ætlað að vekja athygli á og styðja við aðgerðir norrænna sveitarfélaga sem stuðla að sjálfbærum lausnum í orku- og lofts-lagsmálum.

Lesa meira

Iceland Geothermal 2010 - 25/10/2010

Ráðstefnan um hinn íslenska jarðvarmaklasa þar sem Michael Porter mun flytja aðalerindið verður haldin í Háskólabíó þann 1 nóvember næstkomandi.  Við vekjum athygli á afar athyglisverðri dagskrá og fjölda áhugaverðra erinda. 
Lesa meira

Norrænir styrkjamöguleikar á ýmsum sviðum- kynningafundir 2. og 3. nóv - 22/10/2010

Í tengslum við þing Norðurlandaráðs 2.-4. nóvember verða haldnir kynningafundir um samnorræna styrkjamöguleika á nokkrum sviðum. Lesa meira

Árlegir fyrirlestrar nemenda Jarðhitaskólans - 11/10/2010

Árlegir fyrirlestrar nemenda Jarðhitaskólans um verkefni sín verða haldnir í Víðgelmi þriðjudaginn 12. október og hefjast kl. 09:30.
Lesa meira

Ísland og Bandaríkin skrifa undir samning um nýtingu á hreinni orku frá jarðhita - 6/10/2010

Ísland og Bandaríkin skrifuðu í dag undir samning sem miðar að aukinni þekkingu á jarðhitatækni um heim allan og frekari nýtingu hennar.  Sendiherra Bandaríkjanna á Íslandi, Luis E. Arrega, og Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra skrifuðu undir samninginn í Þjóðmenningarhúsinu.

Lesa meira

Að framleiða hreina orku úr sorpi og brennanlegum efnum - nýtt vinnsluferli - 4/10/2010

Fimmtudaginn 7. október, kl. 15:00 ætla þeir Mikael Rüdlinger og Karl-Magnus Mattsson frá BNL Clean Energy að vera með kynningu í Orkugarði á lausnum er snúa að útblásturslausri orkutækni.

Lesa meira

Jarðhitavika í Orkugarði - 4/10/2010

Vikuna 4-8 október verður margt um manninn í Orkugarði, en hingað til lands eru komnir yfir 100 sérfræðingar tengdir jarðhita úr fjórum heimsálfum vegna funda um jarðhitamál sem hér verða haldnir undir sameinginlega heitinu "Geothermal Week in Reykjavík".

Lesa meira

Niðurstöður fýsileikakönnunar á framleiðslu DME á Íslandi. - 1/10/2010

Nú hafa verið birtar niðurstöður fýsileikakönnunar á DME framleiðslu á Íslandi, en könnunin var samstarfsverkefni Mitsubishi Heavy Industries, Heklu ehf., Iðnaðarráðuneytis, ELKEM, Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands, Mannvits og Orkustofnunar.

Lesa meira

Notkun ljósdíóðu-lampa gæti dregið stórlega úr rekstrarkostnaði vegna raforkunotkunar hjá garðyrkjubændum. - 1/10/2010

Samstarfsverkefni Orkuseturs og Vistvænnar Orku efh. um tilraunaræktun með ljósdíóðu-lömpum bendir til að spara megi um og yfir 50% í raforkunotun til gróðurhúsalýsingar.

Lesa meira