Fréttir

Veggspjöld til kynningar á orkumálum - 29/9/2009

Orkustofnun hefur nú tilbúin veggspjöld ætluð til kynningar á orkumálum Íslands á erlendri grundu.

Lesa meira

Umsókn Sagex Petroleum og Lindir Exploration um sérleyfi til rannsókna og vinnslu kolvetnis dregin til baka - 23/9/2009

Orkustofnun barst síðla dags þann 22. september 2009 erindi frá Sagex Petroleum, þar sem sameiginleg umsókn félagsins og Lindir Exploration um sérleyfi til rannsókna og vinnslu kolvetnis á Drekasvæðinu er dregin tilbaka.

Lesa meira

Nemendafyrirlestrar Jarðhitaskólans - 23/9/2009

Árlegir fyrirlestrar nemenda Jarðhitaskólans um verkefni sín verða haldnir í Víðgelmi, fyrirlestrasal Orkugarðs, Grensásvegi 9, mánudaginn 28. september 2009 og hefjast kl. 10:00. Allir áhugamenn um jarðhita eru velkomnir. Lesa meira

Milljarður á mánuði í gjaldeyri myndi sparast með því að nota innlenda orku á bílaflotann - 8/9/2009

Íslendingar gætu sparað rúmlega einn milljarð króna í gjaldeyri í hverjum mánuði með því að hætta að nota olíu og bensín á bílaflotann og skipta yfir í innlenda orkugjafa svo sem rafmagn og metan.
Lesa meira

Orkustofnun veitir rannsóknarleyfi á vatnasviði Hólmsár í Skaftártungu - 7/9/2009

Orkustofnun veitti Landsvirkjun og RARIK ohf. rannsóknarleyfi á vatnasviði Hólmsár í Skaftártungu þann 21. ágúst 2009. Rannsóknarleyfið er veitt til þriggja ára og gildir til 31. desember 2012.
Lesa meira

Samstarfssamningur á milli Orkustofnunar og Háskólans í Reykjavík - 7/9/2009

Síðastliðinn föstudag var undirritaður samstarfssamningur á milli Orkustofnunar og Háskólans í Reykjavík vegna starfsnáms.

Lesa meira

Styrkir vegna umhverfisvænnar orkuöflunar - 7/9/2009

Þann 8. apríl 2008 voru samþykktar breytingar á lögum um niðurgreiðslur á húshitunarkostnaði um greiðslu styrkja vegna umhverfisvænnar orkuöflunar og/eða aðgerða sem leiða til bættrar orkunýtingar við húshitun.
Lesa meira