Fréttir

Olíuleit við Ísland - Hádegisfundur - 27/4/2007

Iðnaðarráðuneytið og Auðlindaréttarstofnun HR bjóða til hádegisfundar mán. 30. apríl nk. kl. 12:00 - 13:30 í tilefni af skýrslu ráðuneytisins um hugsanlega útgáfu sérleyfa til leitar, rannsókna og vinnslu á olíu og gasi á Drekasvæði við Jan Mayen-hrygginn. Lesa meira

CO2 - Nýr vefur um loftslagsmál - 26/4/2007

Nú hefur Orkusetur sett í loftið nýjan vef um loftslagsmál, www.CO2.is.  Tilgangurinn er að setja fram á einum stað staðreyndir og upplýsingar um útblástursmál og loftslagsbreytingar. Lesa meira

Jarðhitaskólinn hefur 29. starfsár sitt - 26/4/2007

Jarðhitaskólinn verður settur á morgun, miðvikudaginn 25. apríl kl. 9:00 í Víðgelmi. Þetta er 29. starfsár skólans. Lesa meira

Dagur umhverfisins - Hrein orka og loftslagsmál - 25/4/2007

Dagur umhverfisins, 25. apríl, tileinkaður hreinni orku og loftslagsmálum. Umhverfisráðuneytið efnir til samkomu á Kjarvalsstöðum sem hefst kl. 12:00 á hádegi með ávarpi Jónínu Bjartmarz umhverfisráðherra.
Lesa meira

Olíuleit við Ísland - opinn kynningarfundur í dag - 23/4/2007

Iðnaðar- og viðskiptaráðuneytið stendur fyrir kynningu á áætlun og umhverfismati vegna hugsanlegrar olíuleitar á Drekasvæði við Jan Mayen hrygginn í fundarsal Orkustofnunar, Grensásvegi 9, í dag mánudaginn 23. apríl, kl. 13.00-16.00.

Lesa meira

Nýtt samstarf Evrópuríkja um endurnýjanlega orku - 18/4/2007

Sex ríki og ríkjahlutar í Evrópu hafa gengið til samstarfs um málefni endurnýjanlegrar orku. Samningur þar að lútandi var undirritaður af ráðherrum eða sendiherrum í Brussel þann 17. apríl 2007. Lesa meira

Bifreiðar stjórnarráðsins og flugferðir starfsmanna þess verða kolefnisjafnaðar - 17/4/2007

Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í dag að allar bifreiðar stjórnarráðsins verði kolefnisjafnaðar. Jafnframt verður öllum ráðuneytum og ríkisstofnunum gert að kolefnisjafna vegna flugferða ríkisstarfsmanna innanlands og erlendis frá og með næstu áramótum. Lesa meira

Raforkunotkun ársins 2006 - 12/4/2007

Raforkuhópur Orkuspárnefndar hefur tekið saman tölur yfir raforkunotkun ársins 2006. Fram kemur að árið 2006 jókst raforkuvinnsla um 14,3% frá fyrra ári. Notkun raforku í stóriðjufyrirtækjum jókst um 20,7% frá fyrra ári og aukning almennrar notkunar var um 4,8%. Töp við flutning orkunnar frá virkjunum til almenningsveitna og stórnotenda voru 269 GWh. Lesa meira

Tækifæri morgundagsins: Málþing á Akureyri - 10/4/2007

Orkustofnun og Impra nýsköpunarmiðstöð standa sameiginlega að málþingi á Akureyri, föstudaginn 13. apríl, kl. 14:00 til 16:30, allir velkomnir. Yfirskriftin er Tækifæri morgundagsins og koma fyrirlesarar víða að. Í hléi spilar hljómsveitin Hundur í óskilum. Lesa meira