Bókasafn Orkustofnunar

UM safnið

 

Bókasafn Orkustofnunar er sérfræðisafn í orkumálum, auðlindanýtingu og jarðvísindum.  

Stóran hluta efnisins er ekki að finna annars staðar og er því mikilvægur hluti af heildarsafnkosti landsins.

 

Safnkosturinn er yfir 20.000 titlar  og er skráður  í Gegni – http://www.gegnir.is/ , landskerfi bókasafna.   

Skýrslur Orkustofnunar og forvera hennar eru skráðar í Gegni og flestar aðgengilegar þar á rafrænu formi.

Meðal annars efnis eru bækur, skýrslur ÍSOR og útgáfur Jarðhitaskólans. Þá má nefna ráðstefnurit, doktorsritgerðir og skýrslur frá öðrum útgefendum.

Eldra efni má finna hér í eldri leitarvél safnsins - t.d. greinargerðir Orkustofnunar sem enn eru ekki komnar í Gegni

 

Bókasafn Orkustofnunar hefur frá upphafi greitt sinn hlut í landsaðgangi að rafrænum gagnasöfnum og tímaritum á http://www.hvar.is/ . Fjölmörg vísindatímarit á fagsviði stofnunarinnar eru í þessum landsaðgangi.

 

Safnið þjónar fyrst og fremst starfsfólki og nemendum Orkustofnunar, Jarðhitaskóla Sameinuðu þjóðanna og Íslenskra orkurannsókna.  Safnið býður notendum aðgengi að ritum og upplýsingaþjónustu í tengslum við rannsóknir, nám og kennslu.

Safnið er einnig opið almenningi, þótt safnefni sé fyrst og fremst til afnota á staðnum. Þá er hægt að senda fyrirspurnir til safnsins.

 

Safnið er opið frá kl. 9 – 16 alla virka daga.

Póstfang safnins er:  bokasafn@os.is

 

Forstöðumaður Bókasafns  :

Rósa S. Jónsdóttir – rosa.s.jonsdottir@os.is

 



Þetta vefsvæði byggir á Eplica