Skálftavirkni við Húsmúla

Þann 8. september 2011 hófst hrina skjálfta við Hellisheiðarvirkjun í kjölfar fyrrgreindrar niðurdælingar. Frá þeim tíma hafa alls mælst um 1900 smáskjálftar, allt niður í stærð Ml -0,3. Um 80 skjálftar náðu stærð Ml 2, þar af voru 19 yfir Ml 2,5 og 7 skjálftar af stærð Ml 3,0-3,8. Flestir skjálftar sem mælast yfir Ml 2,5 hafa fundist í Hveragerði og þeir stærstu fundust einnig á höfuðborgarsvæðinu.

Frumniðurstöður úrvinnslu benda til þess að skjálftarnir raðist á a.m.k. 2-3 sprungur og að stefna þeirra sé um 10-15° austan við norður. Ein sprungan er nánast lóðrétt, hallar ~85° til vesturs, og annarri hallar ~70°-75° til vesturs. Þriðja sprungan er ógreinileg, um það bil lóðrétt og með svipaða stefnu og hinar sprungurnar. Skjálftavirkni hefur áður mælst í tengslum við borun og prófun á þeim borholum sem nú hafa verið teknar í notkun. Nokkrar hrinur hafa orðið frá því seinni hluta árs 2009, en engin eins stór og nú.

 

Senda grein