Niðurdæling við Húsmúla

Upphaflegt niðurdælingarsvæði Hellisheiðarvirkjunar er í Gráuhnúkum. Hár hiti reyndist vera í holum sem boraðar hafa verið á því svæði. Því hafa verið uppi áætlanir um að hætta niðurdælingu á Gráuhnúkasvæðinu og nota það sem vinnslusvæði fyrir virkjunina. Í þessu samhengi var nýtt niðurrennslissvæði skipulagt við Húsmúla. Alls hafa verið boraðar 7 holur á Húsmúlasvæðinu og af þeim hafa 5 verið tengdar við niðurdælingarveitu Hellisheiðarvirkjunar. Þær holur sem tengdar eru skera misgengi sem ganga inn í Húsmúlann. Húsmúlinn er talinn vera í jaðri jarðhitakerfisins á Hellisheiði og hitamælingar í holum þar hafa staðfest þá tilgátu. Vatninu er dælt niður í jaðar kerfisins svo það renni um sem lengstan veg áður en það kemur aftur upp um vinnsluholur og nái þannig að nema sem mestan varma úr berginu.

Í byrjun september var niðurdælingarsvæðið við Húsmúlann tekið í notkun. Um leið var dregið úr dælingu í holur á Gráuhnúkasvæðinu. Þann 23. september var síðasta holan tekin í notkun og hefur svæðið verið keyrt með fullum afköstum síðan. Eins og við var að búast hefur talsverð smáskjálftavirkni fylgt gangsetningu Húsmúlasvæðisins. Nú fara um 550 l/s niður í holur á Húsmúlasvæðinu. Dæluþrýstingi er haldið stöðugum en nokkrar sveiflur eru í viðtöku holnanna. Sveiflur þessar virðast í samhengi við jarðskjálftavirknina. Á mynd 1 má sjá heildardælinguna í Húsmúlasvæðið sem fall af tíma ásamt skjálftavirkni.

 

Senda grein