Virkjunarleyfi Hellisheiðarvirkjunar

 hellishvirkjun

Til þess að fá að reisa og reka virkjun þarf viðkomandi orkufyrirtæki að sækja um virkjunarleyfi til Orkustofnunar samkvæmt raforkulögum.

Orkuveita Reykjavíkur sótti um virkjunarleyfi til Orkustofnunar um stækkun Hellisheiðarvirkjunar í 303 MWe þann 28.júní 2010 og á grundvelli þeirra gagna og gagna sem síðar bárust veitti Orkustofnun Orkuveitu Reykjavíkur virkjunarleyfi þann 3. júní 2011. Orkuveita Reykjavíkur gangsetti stækkunina formlega þann 1. október 2011.

Í virkjunarleyfinu eru ýmis ákvæði um tilhögun vinnsluaukningar, nýtingarhraða, auðlindastjórnun, niðurdælingu og neyðarlosun á yfirborði, eftirlit, meðferð upplýsinga og frágang mannvirkja. Í eftirfarandi undirköflum er farið yfir hvert atriði fyrir sig.


 

 

Senda grein