Hengilssvæði

Hengilssvæðið er með stærstu jarðhitasvæðum á landinu, eða um 140 km2. Það er þó ekki allt einn og sami suðupotturinn. Vesturhlutinn tengist eldstöðvarkerfi Hengilsins. Innan hans eru vinnslusvæðin á Nesjavöllum og á Hellisheiði. Austan Hengils er Ölkelduhálssvæðið, sem tengist Hrómundartindseldstöðinni. Sunnan þess er Hverahlíð og ný gögn benda til að vinnanlegur jarðhiti geti verið við Gráuhnúka og Meitil. Austasti hluti háhitasvæðisins tengist Hveragerðiseldstöðinni sem er útdauð og sundurgrafin.
Rafafl á Nesjavöllum er nú 120 MWe og varmaafl 300 MWth . Hellisheiðar virkjun er nú 213 MWe en fyrirhuguð er stækkun hennar um 90 MWe í rafafli og 400 MWth í varmaafli. Virkjun í Hverahlíð er áætluð 90 MWe. Alls er talið að Hengilssvæðið geti staðið undir um 700 MWe rafafli og enn meira varmafli.
